Stundum ómar

Texti: Valgarður Guðjónsson

Páll er sæmilegur penni
pikkar viðtöl af og til.
Skrifar skemmtilega frasa
og skreytir sjálfur þar sem þarf.

Gamlar klisjur, gömul slagorð,
ganga aftur um það bil.
Stundum ómar því tunnan er tóm.
Tónar hljóma í gatslitnum skóm.

Þarf að vera einhvers virði.
Vill nú bóka nokkur orð.
Lappa upp á andlegt útlit
auma frasa nær í arf.

Lög