|
Alltaf að fylgjast með umræðum, spjalli, blaðagreingum og viðtölum, nokkur dæmi fylgja, megið endilega senda
okkur fleiri ef eitthvað er að fara framhjá okkur - tökum að sjálfsögðu ekki mark á neikvæðum athugasemdum, þó
þær kynnu að finnast einhvers staðar.
Blaðagreinar
Pönk umræða í Lesbók Morgunblaðsins
Nokkur atriði í framhaldi af umræðum um Pönk á Íslandi þar sem við höfum aðra skoðun en greinarhöfundar:
- Valur segir í Lesbókinn 9. ágúst að Melarokk hafi verið haldnir til að andæfa herstöðinni. Við könnumst
engan veginn við þetta og amk. hefur þá gleymst að segja okkur frá þessu á sínum tíma - og ekkert fer fyrir því
í umfjöllun dagblaða frá þessum tíma.
- Vissulega er rétt hjá Val í Lesbókinni 9. ágúst að við Fræbbblar annars vegar og Bubbi og Utangarðsmenn
hins vegar höfðu ólíkar skoðanir á pólítík og tónlist. Þetta var þó að mestu aukaatriði hjá okkur,
hljómsveitirnar spiluðu mikið saman og tengdust vel - við vorum í sama liðinu! Það gefur ekki rétta mynd að
stilla okkur upp sem andstæðum þó þessi mismunur hafi verið til staðar.
- Við höldum enn að við höfum haft talsverð áhrif á pönk á Íslandi þó þess sjáist engin merki í grein Unnar
Maríu í Lesbókinni þann 2. ágúst.
- Mogginn spurði hvort Óttar Proppé hafi drepið pönkið þegar grein Vals var kynnt í júlí. Eins og Óttar er nú
skemmtiegur þá efast ég um að hann telji Rass vera pönk hljómsveit - og jafnvel þó svo væri, þá getum við ekki
skrifað undir að hann hafi haft líf pönksins á sinni hendi. Við erum að minnsta kosti enn á lífi og sjáum ekki
betur en að þetta hafi líka alveg farið fram hjá erlendum punk hljómsveitum.
Fréttablaðið 8. desember 2004
Umsögn um Dót, þrælskemmtilegur pakki.
DV 7. desember 2004
Umsögn um hljómleika Stranglers og Fræbbblanna, hljómsveitin var þétt, skilaði sínu vel og var ágætlega tekið.
Morgunblaðið 6. desember 2004
Umsögn um hljómleika Stranglers og Fræbbblanna, 4 stjörnur af 5, nýbúnir að senda frá sér þrusufína plötu,
sjaldan verið betur spilandi.
DV 2. desember 2004
Umsögn um Dót, 4 stjörnur, frábær rokkplata.
Morgunblaðið 2. desember 2004
Umsögn um Dót, 4 stjörnur af 5, grípandi og kraftmikil lög.
DV 6. nóvember 2004
Ítarleg og vel unnin kynning á myndinni, nýju plötunni, viðtal við Stebba Valla og Helga (og reyndar Assa) og
yfirlit yfir ferilinn.
Morgunablaðið 30./31. október 2004, Rokkrétt samhengi
Viðtal við Valla um Dót og sögu Fræbbblanna
Útvarpsviðtöl
Rúv
Valli í viðtali hjá Sigmari í Kastljósi um Dót, "Pönkið og Fræbbblarnir", Stranglers og Fræbbblana, 28. október
2004.
Rás 2
Valli í viðtali hjá Andreu, 22. nóvember 2004, farið yfir Dót plötuna, en auðvitað kom eldur við sögu,
stórbruni í Reykjavík með tilheyrandi fréttainnslögum.
Rás 2
Valli í viðtali hjá Frey í Popplandi um Dót, 25. október 2004.
Xið
Valli í viðtali hjá Freysa um Dót og næstu hljómleika, 28. október 2004.
Skonrokk
Valli óskalagasjúklingur hjá Dr. Gunna, 23. október 2004.
Blogg
Grafari
..gekk smá hring og ætlaði mér að sjá Fræbbblanna spila og náði þeim... Þeir eru auðvitað ekkert nema
snillingar.... Stebbi á trommunum æðislegur:)
Drykkjuhorn Eyþórs
Fræbbblarnir (já með 3 B) komu svo síðastir og þeir eru þrátt fyrir aldur bara þokkalega mikið rokkaðir. Þeir
spiluðu þarna lög eftir Jhonny Cash og Ramones og fleirri, af sjálfsögðu fyrir sín eigin lög sem var nóg af.
Mér skillst á Hilmari (söngvara Mextrakt) að þeir haf bara verið að fíla sig svakalega vel hérna í víkinni og
vilji endilega spila með Mextrakt Aftur!!!
Hugsanir
í gjafaleiðangri sem leiddi til að við fórum á tónleika með Stranglers. Fræbblarnir hituðu upp, voru þéttir og
góðir. Stranglers voru kröftugir og spiluð gamalt og nýtt.
Fór á útgáfutónleika Fræbblanna í gær og skemmti mér vel í ný reykræstum Þjóðleikhúskjallara. Gaman að hlusta á
hráa skemmtilega tónlist.
Haugatussa, stúlkan á heiðinni
já.. ótrúlegt en satt ! Mér tókst að fara á Grandrokk á föstudagskvöldið að sjá pönkhljómsveitina FRÆBBLANA án
þess að falla í yfirlið .. ég þakka það köldum bjór sem rann ljúft um æðarnar og hélt líkamanum köldum og
hressum í hitamollunni.
Blogg a la Malla
svo fórum við Arnar og Heimir saman á Fræbblaútgáfupartý. Fræbblarnir spiluðu nýtt og gamalt efni og stóðu sig
alveg frábærlega. Það var geggjuð stemmning og ofsa gaman. Ég hitti gamlan félaga þarna og hann var svo ánægður
að sjá mig. Allavegana, eftir teitið fórum við Arnar bara heim
Sigurlaug
Stranglers tónleikarnir voru ekki af verri endanum. Dró mater með mér. Stóð uppi við sviðið og dillaði mér og
hnykkti haus í takt við tónlist Fræbblanna og Stranglers. Mater var líka í sjöunda himni eptir herlegheitin, sá
mest eptir að hafa ekki verið niðri við sviðið með mér...
Hugsanir
Fórum á tónleika með Stranglers. Fræbblarnir hituðu upp, voru þéttir og góðir. Stranglers voru kröftugir og
spiluð gamalt og nýtt. Fólkið á tónleikunum var flest komið á miðjan aldur en skemmti sér samt vel.
skakkarlappir
Mogginn segir frá Pönk tónleikum á baksíðunni í dag, fyrirsögnin er ekki allir skemmtu sér vel á pönk tónleikum
eða Fræbblarnir fóru á kostum neibb fíkniefnaleit á pönktónleikum. Gaman væri að sjá efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra mæta með skattinum á tónleika hjá sinfóníuhljómsveitinni til að leita að fjársvikurum og
hvítflibbaglæpamönnum. Ætli baksíðan á mogganum segði þá engin innherjaviðskipti komu upp á sinfóníutónleikunum
í gær?
Gunnarinn
Við Ásta létum hins vegar hunda þefa af okkur ásamt öllum hinum gömlu pönkurunum í Smáranum í Kópavoginum á
Fræbblunum og Stranglers. Fræbblarnir enduðu á laginu "Í nótt" það er lag með einum stórkostlegasta og
innihaldsríkasta texta. Segir nákvæmlega það sem allir hinir eru að reyna að segja undir rós í sínum lögum!
Steini
Fræbblarnir hituðu upp og voru góðir, enda næstbesta paunksveit íslandssögunnar.
Farfuglinn
Við mættum tímanlega og hlustuðum á Fræbbblana spila. Svei mér þá ef Fræbbblarnir voru ekki betri en þeir voru
þegar ég heyrði í þeim síðast. Alla vega var hljóðfæraleikurinn þéttur og góður.
Ragnheiður
Fór á Gaukinnn á rokktónleika og var svaka stuð, Fræbbblarnir að spila ásamt fleirum, það var allavega svaka
gaman.
Babylotion
Skrapp á tónleika á gauknum í gær. Daysleeper og Botnleðja ásamt Láru Rúnarsdóttur ... voru að spila og svo
einhverjir fleiri. Það var "surprise" gigg hjá Fræbbblunum sem var algjör snilld. Daysleeper tóku líka would?
með Alice in Chains sem var enn meiri SNILLD. Botnleðja lokuðu svo kvöldinu og voru svo leiðinlegir að þeir
tæmdu staðinn og við fórum líka.
Með öl í maga
Síðan hitti ég gauja og við kíktum á gaukinn. þar sem m.a Fræbblarnir voru að spila ásamt Botnleðju og Dark
harvest. Það voru reyndar einhver ...bönd inn á milli eins og Daysleeper og svoleiðis kattafóður en
Fræbbblarnir og Dark Harvest stóðu tvímælalaust uppúr. Skreið svo upp í leigubíl um fimmleytið.
Sísí
Var líka stjörnusleikja en þorði einhvernvegin ekki að tala við Ceres, kannski voru það gullbuxurnar og
handklæðið sem hann var með um hálsinn, það var eitthvað of mikið glam við það. Þess í stað röflaði ég í
Fræbbblunum og gaf þeim númerið mitt. Náði ekki að grúppíast utaní Einari Má rithöfundi sem var að slamma undir
Fræbbblunum, en mér fannst það alveg geðveikt sjarmerandi líka.
Zeranico
Ásamt því að leika lög af þessari nýútkomnu skífu voru gömlum slögurum einnig gerð góð skil ásamt því sem cover
lög fengu að fljóta inn á milli, og ber þar helst að nefna cover af laginu I walk the line eftir meistara Cash
sem undirrituðum finnst tvímælalaust vera flottasta túlkun á þessu lagi fyrr og síðar.
Rúsínan í pylsuendanum var svo sennilega einn af frægari slögurum þeirra Fræbbbla "Í nótt" og er ekki frá því
að undirritaður hafi orðið 12 ára á ný.
Himpigimpi
Heisi var hinsvegar klár í meira nánast strax, en þá voru Fræbblarnir að byrja að spila. Við hlupum inn, ég,
Óli, Heisi og Gunni og rifum okkur úr bolunum og slömmuðum út alla Fræbblana. Það sniðugasta við þetta var að
það var enginn á staðnum kominn í stuð, þannig að það var bara hópur af hreyfingarlausu fólki, sem myndaði
hring í kringum okkur, að horfa á okkur snillingana dansa berir að ofan. Svo smám saman kom fleira fólk í
stuðið...
Gary Vermin um Life's A Gas
Other sublime submissions include .... "Heaven Needed A Lead Singer" by Iceland's Fraebbblarnir,......
Umsögn um Hippa á safnplötunni Delerium Tremens
Fraebbblarnir(skriver man verkligen tre b?) från Island är riktigt bra.
Johnny
False death 7" (1981) Total KBD classic, and contains the best cover I've ever heard of "Summer nights".
Nördinn
Það stendur eftir að hvað sem hljómleikum The Strokes á Broadway líður er konsert ársins hjá mér ennþá
Fræbbblarnir á Vídalín. Ekki það að ég hafi búist við að Buff myndi breyta því, en ég bjóst þó við
prýðisskemmtun eins og Pétri og co er von og vísa.
Gömlu kallarnir voru að koma úr stúkusætunum sínum á Quarashi tónleikunum í höllinni. Strákarnir settu upp
prýðilegasta show, og hristu upp í liðinu sem mætti. Alltaf jafn gaman að horfa á Sölva tromma og
gítartarfurinn var eins og sambland af Angus Young og mannýgu nauti! Allt verulega pro, þeir voru meira að
segja betri en Fræbbblarnir á Vídalín!
Kjarri
Fór a minningartónleika um Jón Reiðufé í gærkvöldi þar sem Valur stóð sig eins og hetja en flest annad var
hálfgert úldmeti - sérstaklega hin geysileiðinlega sveit Kimono. Fræbbblarnir voru þó assgoti friskir.
Zeranico
Johnny Cash tónleikarnir í gær eru afstaðnir og get ég ekki annað sagt en að ég hafi komið sæll og glaður af
þessum merka viðburði
Hápunktur kveldsins var að mínu mati að sjá túlkun Fræbblana gömlu og góðu á meistaraverki eftir sjálfan Cash
Megas stendur alltaf fyrir sínu þó þreyttur sé en Mínus létu ekki sjá sig eins og mér hafði verið tjáð að þeir
myndu gera
Venni
Það má segja að Fræbbblarnir séu eina hráa kjötið sem ég ét, en mikið djö... finnst mér það gott.
|